2,3 milljóna sátt í máli um skipun ráðuneytisstjóra

Mennta- og menningarmálaráðuneytið var hér áður til húsa en ráðuneytið …
Mennta- og menningarmálaráðuneytið var hér áður til húsa en ráðuneytið heitir nú mennta- og barnamálaráðuneytið. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Sátt hefur náðst í máli sem varðaði mat hæfnisnefndar á einstaklingum við skipun ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti árið 2019, að því er kemur fram í tilkynningu.

Segir að forsenda þeirrar ráðningar hafi verið mat ráðgefandi hæfnisnefndar sem mat  fjóra umsækjendur, tvo karla og tvær konur, mjög vel hæfa til að hljóta embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, þ.e. Jón Vilberg Guðjónsson, Karitas H. Gunnarsdóttur, Margréti Hallgrímsdóttur og Pál Magnússon.

„Einn umsækjenda sem metinn var vel hæfur, Hafdís Helga Ólafsdóttir, kærði niðurstöðuna til kærunefndar jafnréttismála á þeim grundvelli að hún hefði átt að vera í hópi þeirra sem metnir voru hæfastir. Kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði kæranda í hag og mat það svo að kynferði hafi legið til grundvallar ákvörðun um skipan í embætti ráðuneytisstjóra og því hafi kærði brotið gegn 1. mgr. 26. gr. jafnréttislaganna,“ segir í tilkynningunni.

Ráðherra höfðaði mál gegn kæranda

Kemur fram að í framhaldinu hafi fyrrum mennta- og menningarmálaráðherra höfðað mál gegn kæranda enda hafi það á þeim tíma verið eina leiðin til þess að hnekkja úrskurði kærunefndar jafnréttismála. Á þessum tíma var Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra.

Segir í tilkynningunni að gerðar hafi verið breytingar á stjórnsýslu jafnréttismála í kjölfar þessa máls og að framvegis getur kærunefndin sjálf verið aðili máls ef úrskurði nefndarinnar er skotið til dómstóla.

„Málsaðilar hafa nú komist að þeirri niðurstöðu að ljúka málinu með sátt að frumkvæði Hafdísar Helgu. Í sáttinni felst greiðsla miskabóta að upphæð 2,3 milljónir kr. auk málskostnaðar,“ segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert