Landspítali aftur upp á neyðarstig

Frá Landspítala, sem nú er á neyðarstigi.
Frá Landspítala, sem nú er á neyðarstigi. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Land­spít­al­inn hef­ur verið færður af hættustigi á neyðarstig, að því er fram kem­ur á vef spít­al­ans. 

51 sjúk­ling­ur ligg­ur á spít­al­an­um smitaður af veirunni. Einn er á gjörgæslu með Covid en vegna annars, segir á vef spítalans.

Meginástæður fyrir flutningi spítalans á neyðarstig eru, samkvæmt farsóttanefnd, mikill fjöldi og aðflæði Covid-smitaðra sjúklinga, fá legurými, miklar annir á Covid-göngudeild, mikill fjöldi starfsmanna í einangrun og óheyrilegt álag á heilbrigðiskerfið í heild sinni.

Þá er staðan á bráðamóttöku einnig sögð mjög erfið og fráflæði þaðan mjög tregt.

Metfjöldi bættist í hópinn í gær eða 14 en einungis 5 voru útskrifaðir úr honum. Það er því þröngt setinn bekkurinn og í dag verður allt kapp lagt á að hreyfa Covid sjúklinga í önnur úrræði til að eiga rými fyrir bráðainnlagnir dagsins. Í gær greindust yfir 80 starfsmenn með Covid og eru nú að lágmarki 369 frá vinnu vegna þess,“ segir á vef spítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert