Stálgrindarhús sprakk í óveðrinu

Stálgrindarhús við Dofrahellu í Hafnarfirði sprakk í óveðrinu sem nú gengur yfir. Lokað hefur verið fyrir umferð um Helluhverfi, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem eru staðsettir í hverfinu eða næsta nágrenni eru beðnir um að halda sig innandyra, en brak úr húsinu hefur fokið til.

Búist er við að veðrið á þessum stað gangi niður næsta klukkutímann.

Mikið foktjón varð í dag.
Mikið foktjón varð í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert