Pétri „Jesú“ vikið úr tveimur hljómsveitum

Pétri Örn Guðmundsson.
Pétri Örn Guðmundsson. Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson

Pétri Erni Guðmundssyni, stundum kallaður Pétur Jesú, hefur verið vikið úr hljómsveitunum Buff og Dúndurfréttum. 

Frá þessu greina hljómsveitirnar á Facebook-síðum sínum.

Leiða má líkur að því að ástæða brottvikninganna sé frásögn tónlistarkonunnar Elísabetar Ormslev í Fréttablaðinu í morgun, um samband sitt við mikið eldri frægan tónlistarmann. Fram kemur í viðtalinu að „samband“ þeirra hafi hafist þegar hún var barnung. Ljóst er að sambandið sem lýst er hafi verið ofbeldissamband.

Pétur Örn er ekki nafngreindur í viðtalinu, en vísað er til hans og framlags hans í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2011 þegar hann flutti lagið Elísabet.


Elísabet greindi fyrst sjálf frá málinu á Twitter-reikningi sínum á sunnudaginn. Þar kemur fram að kornið sem fyllti mælinn hafi verið að hún hafi séð manninn keyra upp að nýja heimili hennar, sem hvergi var skráð. Hafi hann hrellt hana á fimm mismunandi heimilum í áratug. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert