Gul viðvörun á Suðausturlandi og Austfjörðum

Gul veðurviðvörun er á Suðausturlandi og Austfjörðum fyrripart dags.
Gul veðurviðvörun er á Suðausturlandi og Austfjörðum fyrripart dags. Kort/Veðurstofa Íslands

Gul viðvörun vegna veðurs verður í gildi fyrripart dags á Suðausturland og Austfjörðum, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Útlit er fyrir éljagang og vestanátt 8 til 15 m/s á landinu í dag. Á Suðausturlandi og Austfjörðum er búist við 18 til 25 m/s og vindhviðum staðbundið yfir 35 m/s. Þetta getur skapað varasöm akstursskilyrði.

Það lægir smám saman í dag og síðdegis verður úrkomulítið. Hiti verður um eða undir frostmarki.

Á höfuðborgarsvæðinu styttir upp eftir hádegi en í kvöld verður vaxandi austanátt og vægt frost.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert