Vonandi hægt að opna fyrir umferð upp úr hádegi

Mynd af færð á Hellisheiðinni úr vefmyndavél Vegagerðarinnar frá því …
Mynd af færð á Hellisheiðinni úr vefmyndavél Vegagerðarinnar frá því klukkan 10:10 í morgun. Vefmyndavél/Vegagerðin

Vegir um Hellisheiðina og Þrengsli eru enn lokaðir fyrir umferð frá því í gær þar sem færð á vegum hefur verið afar slæm og skyggni lélegt.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er nú unnið að því að ryðja vegina og að öllum líkindum verður hægt að opna fyrir umferð upp úr hádegi.

Veðrinu hefur lægt frá því í morgun og farið er að birta til á Hellisheiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert