Lækjartorg mun taka stakkaskiptum

Mannvirkið hringlóttar virðist vera hugsað til að halda utan um …
Mannvirkið hringlóttar virðist vera hugsað til að halda utan um fólk, hvort sem það eru fjöldafundir, jólamarkaður eða tónleikar. Mynd/Borgarlind

Lækjartorg mun taka stakkaskiptum á næstu árum og samkvæmt vinningstillögu í hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi rými mun hringlótt opið manvirki rísa a torginu miðju. 

Tillagan bar heitið Borgaralind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra veitti verðlaunahöfum viðurkenningar ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra á fundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun um samgöngumál í Reykjavík.

Rými fyrir fólk að leiðarljósi

Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) efndu til hönnunarsamkeppninnar árið 2021 og var auglýst eftir tillögum sem hefðu rými fyrir fólk að leiðarljósi í hönnun. Samkeppnin var hönnunarsamkeppni með forvali og var í tveimur þrepum. Markmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og áhugaverðar hugmyndir um hönnun Lækjartorgs og nærliggjandi gatna. 

Svona gæti torgið litið út að vetri.
Svona gæti torgið litið út að vetri. Mynd/Borgarlind

Samkeppnissvæðið náði yfir Lækjartorg, Lækjargötu frá Hverfisgötu að Austurstræti, Austurstræti frá Lækjargötu að Ingólfstorgi og Bankastræti frá Þingholtsstræti að Austurstræti.

Í umsögn dómnefndar segir  að tillagan „uppfylli flestar áherslur samkeppnislýsingarinnar og gefi torginu og aðliggjandi gatnarýmum nýja vídd og nýtt og spennandi hlutverk í hjarta borgarinnar“.

Enn fremur segir í áliti dómnefndar: „Heildaryfirbragð tillögunnar nær á sannfærandi hátt að tengja saman Stjórnarráðið, Lækjartorg og Bankastræti sem þjónað er af meginæð Borgarlínu sem kemur til með að liggja eftir Lækjargötu.“

Vísar til mannlífs

Nafnið Borgaralind vísar til mannlífsins. „Á endanum fjallar þetta um fólkið og það er fólkið sem gerir borgina,“ Karl Kvaran, sem kynnti tillöguna fyrir hönd teymis síns, en lindarhluti nafnsins vísar til lækjarins og leiðir enn fremur hugann að því skemmtilega mannlífi sem myndast í kringum heitu pottana í borginni.

Fleiri tré og meira mannlíd á Austurstræti.
Fleiri tré og meira mannlíd á Austurstræti. Mynd/Borgarlind

Stefnt er að því að semja við höfunda tillagna um endanlega útfærslu forhönnunar. Nýtt deiliskipulag, ef þess gerist þörf, verður unnið í samræmi við vinningstillöguna.

Karl Kvaran kynnti sigurtillöguna.
Karl Kvaran kynnti sigurtillöguna. Ljósmynd/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert