Hæstiréttur mun taka fyrir mál Gráa hersins, baráttuhóps eldra fólks um lífeyrismál, á hendur Tryggingastofnun ríkisins og íslenska ríkinu vegna skerðingar í almannatryggingakerfinu.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði stefndu að fullu á síðasta ári. Hefur málunum nú verið áfrýjað beint til Hæstaréttar án viðkomu í Landsrétti.
Hæstaréttardómararnir Ása Ólafsdóttir, Björg Thorarensen og Karl Axelsson standa að baki þessari ákvörðun.
Telja dómararnir að mál þetta hafi þýðingu fyrir rétt fjölda einstaklinga til greiðslu ellilífeyris og varðar mikla hagsmuni þeirra og ríkisjóðs.
Þá er jafnframt talið brýnt að fá niðurstöður Hæstaréttar með skjótum hætti þar sem málið er fordæmisgefandi og hefur almenna þýðingu fyrir stjórnskipulegt gildi ákveðinna laga, að því er fram kemur á vef Hæstaréttar.
Íslenska ríkið og Tryggingastofnun voru sýknuð að fullu í desember á síðasta ári í málum þriggja félaga úr Gráa hernum sem voru höfðuð vegna skerðingar í almannatryggingakerfinu. Mál þeirra eru ólík en hópurinn telur þau gefa heildstæða mynd af göllum almannatryggingakerfisins.
Félagarnir höfðuðu málin að beiðni og fyrir hönd samtakanna á hendur Tryggingastofnun og íslenska ríkinu. Snúast þau um hvort skerðingarnar standist ákvæði stjórnarskárinnar, meðal annars eignaréttarákvæðið.
Eftir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur var kveðin upp gáfu stefnendur upp að málinu yrði áfrýjað til Landsréttar. Nú liggur aftur á móti fyrir að svo verður ekki heldur fer málið beint fyrir Hæstarétt.