Vann tæpar tíu milljónir

Lottó.
Lottó.

Viðskiptavinur N1 á Bíldshöfða í Reykjavík var með 1. vinning í lottóúrdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmlega 9,4 milljónir króna. 

Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmlega 207 þúsund krónur. Annar miðinn var í áskrift en hinn keyptur í Lottó-appinu. 

Einn var með 1. vinning í Jókertölum kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna, en miðinn var keyptur í Lottó-appinu.   

Þar að auki voru 8 miðaeigendur með 2. vinning í Jókertölum kvöldsins og fær hver þeirra 100 þúsund krónur.  

Fjöldi vinningshafa var alls 5.535.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert