Halda varnaræfingu hér á landi í byrjun apríl

Varnaræfingin Norður-Víkingur verður haldin í byrjun apríl.
Varnaræfingin Norður-Víkingur verður haldin í byrjun apríl. mbl.is/Golli

Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Íslandi og á hafinu í kringum landið dagana 2.-14. apríl. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ísland og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi.

Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.

Æfingu frestað fyrir tveimur árum vegna veirunnar

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefur verið haldin reglulega frá 1982 en hún grundvallast á ákvæðum varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951. Til stóð að halda hana vorið 2020 en vegna heimsfaraldursins var þeim áformum slegið á frest. 

Tilgangur æfingarinnar er meðal annars að æfa varnir sjóleiðanna í kringum landið og varnir mikilvægra mannvirkja og öryggisinnviða, til dæmis fjarskiptakapla. Þá æfa þátttakendur leit og björgun almennra borgara og taka Landhelgisgæslan og lögreglan þátt í þeim hluta. 

Liður í Norður-Víkingi er svo lending bandarískra landgönguliða við Miðsand í Hvalfirði. Lendingin er áætluð kringum 11. apríl og má þá búast við tímabundnum takmörkunum á umferð um svæðið. 

Um 700 manns taka þátt í æfingunni

Öðrum aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkjum er boðin þátttaka í æfingunni og hafa sjóherir Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Noregs staðfest þátttöku. Herskip frá þessum ríkjum æfa varnir siglingaleiðanna suður af Íslandi og taka þátt í kafbátaleit undan ströndum Íslands með þátttöku kafbátaleitarvéla og þyrlna frá viðkomandi þátttökuþjóðum.

Umfang æfingarinnar er svipað og áður. Alls er reiknað með að heildarfjöldi þátttakenda í æfingunni á Íslandi verði rúmlega 700 manns, um helmingur þeirra verður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að þegar æfingunni er lokið komi tvö til fjögur herskip til hafnar í Reykjavík og áhafnir þeirra fari í stutta stund í land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert