Tveir einstaklingar gætu tekið við þessu starfi

Íslensk erfðagreining er leiðandi á sínu sviði í heiminum og fyrirtækið leggur meira af mörkum en nokkur stofnun á þessu sviði í heiminum. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sem var gestur í Dagmálaþætti Páls Magnússonar en þættir hans eru sýndir alla laugardaga á mbl.is.

Í þættinum ræddu þeir meðal annars um fyrirtækið Íslenska erfðagreiningu og framtíð þess.

Slík fyrirtæki ólíkindatól

Aðspurður hvort svo kunni að fara að Íslensk erfðagreining eða stór hluti starfsemi þess yrði flutt úr landi þegar að því kemur að hann hættir störfum segir Kári:

„Ég held að það sé full ástæða til þess að halda vöku sinni gagnvart þeim möguleika en það er alveg frábærlega hæfileikaríkt fólk sem að vinnur niður í Vatnsmýri,“ sagði Kári. Fullt af fólki geti leitt þetta vísindastarf.

Árið 2012 festi bandaríska líftæknifyrirtækið Amgen kaup á Íslenskri erfðagreiningu. Kári segir að slík fyrirtæki séu ólíkindatól.

„Ég held að aðferðin til þess að sjá til þess að þetta haldi áfram til lengri tíma sé að vera sífellt að velta því fyrir sér hvar það sem við erum að gera passar inn annars staðar en bara þar við sem erum núna því heimurinn getur breyst.“

Vinna sem lýtur sömu lögmálum og hópíþróttir

Páll spurði Kára hvort það starf sem Íslensk erfðagreining sinnir sé hægt að stunda á öðrum stað en á Íslandi segir Kári að það sé hægt að gera hvar sem er, en að ástæðan fyrir því að Íslensk erfðagreining sé þar sem hún er í dag sé vegna þess afburðarfólks sem starfi í Vatnsmýrinni. Slíkt teymi fyrirfinnist ekki annars staðar í heiminum.

„Að mörgu leyti þegar maður horfir á svona vinnu þá lýtur hún sömu lögmálum og hópíþróttir. Þú ert að draga saman fólk sem er með allskonar hæfileika og býrð til úr því eitt lið, og þetta lið niður í Vatnsmýri er alveg ótrúlegt,“ segir hann.

Páll Magnússon og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Páll Magnússon og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. mbl.is/Hallur Már

Ekki á leið í helgan stein í bráð

Þrátt fyrir ummæli Kára um mögulegan flutning Íslenskrar erfðagreiningar úr landi segir hann að í Vatnsmýrinni starfi hópur hæfileikaríks fólks sem gæti leitt starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar að flestu leyti. Hann segir:

„Ég held að við eigum þann möguleika að taka svona tvo einstaklinga úr þessum hópi og láta þá taka við því starfi sem ég hef verið að sinna síðastliðin tuttugu og sex, -fimm ár.“

Þess er þó ekki að vænta að Kári Stefánsson setjist í helgan stein í bráð en hann segist ætla að vinna eins lengi og fólk vilji hafa hann í vinnu. Segir hann jafnframt að honum renni kalt vatn á milli skinns og hörunds þegar að menn leggi það til að hann taki sér frí, en honum finnist frí skelfileg.

Kári Stefánsson segir að ástæðan fyrir því að Íslensk erfðagreining …
Kári Stefánsson segir að ástæðan fyrir því að Íslensk erfðagreining sé þar sem hún er í dag sé vegna þess afburðarfólks sem starfar niður í Vatnsmýri. mbl.is/Hallur Már
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert