Fyrsti vinningur gekk út í Lottóinu í kvöld samkvæmt tilkynningu frá Íslenskri Getspá.
Hinn heppni fær 9,498,990 milljónir fyrir fyrsta vinning og var miðinn keyptur á lottó.is.
Einn fékk 416,620 þúsund í Bónusvinning og var miðinn keyptur hjá Jolla í Helluhrauni í Hafnarfirði.
Sölukassinn í Jolla var sjóðandi heitur þessa vikuna en þaðan kom einnig miði sem fékk 2. vinning. Sex fengu 2. vinning og fengu 100 þúsund hver. Þrír voru í áskrift, einn var keyptur á lotto.is og einn í Holtanesti í Hafnarfirði.