Fjöldi skjálfta í grennd við Grindavík

Grindavík. Fjallið Þorbjörn í bakgrunni.
Grindavík. Fjallið Þorbjörn í bakgrunni. mbl.is/Sigurður Bogi

Fjöldi skjálfta hefur riðið yfir skammt frá Grindavík í dag, en svo virðist sem hrina hafi farið af stað á öðrum tímanum eftir hádegi.

Sterkasti skjálftinn til þessa hefur mælst 3,3 að stærð samkvæmt mælingum Veðurstofunnar, klukkan 14.19. Sá stærsti á eftir honum varð klukkan 14.03 og mældist af stærðinni 3,0.

Skjálftarnir eiga upptök sín skammt austur af Bláa lóninu og hefur þeirra orðið vart í Grindavíkurbæ, samkvæmt upplýsingum mbl.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert