Lýðræðislega kjörinn varaformaður rekinn

Agnieszka Ewa Ziółkowska var síðast kjörin varaformaður árið 2021.
Agnieszka Ewa Ziółkowska var síðast kjörin varaformaður árið 2021. Samsett mynd/mbl.is

Agnieszka Ewa Ziól­kowska, vara­for­maður Eflingar, er ein þeirra sem fékk uppsagnarbréf frá stéttarfélaginu í gær.

Agnieszka greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni þar sem hún bendir á að varaformaður félagsins sé lýðræðislega kjörin, ekki ráðinn eftir auglýsingu.

„Er þetta hluti af nýrri stefnu B-listans? Hvað næst? Ætla þau að auglýsa eftir fólki í stjórn? Nýjum formanni?“ segir í færslu hennar en hún var kjörin varaformaður Eflingar árið 2019 og aftur árið 2021.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert