Fuglaflensa staðfest á Íslandi

Fuglaflensa hefur greinst í heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum …
Fuglaflensa hefur greinst í heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandakirkju við Suðurstandaveg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fuglaflensa hefur verið  staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undarfarna daga. Um er að ræða  heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandakirkju við Suðurstandaveg. 

Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar. 

Þar segir einnig, að heimilishænsni á bóndabæ á Skeiðum, þar sem hrafninn fannst, hafi jafnframt sýnt sjúkdómseinkenni og voru fuglarnir allir aflífaðir í dag.

„Sýni hafa verið tekin úr hænsnunum og er beðið niðurstöðu rannsóknar. Fuglaflensuveiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum er af gerðinni H5. Meinvirkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niðurstaðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknarstofum.   

Viðbragðsáætlun Matvælastofnunar um viðbrögð og varnir gegn smitandi sjúkdómum í fuglum hefur verið virkjuð,“ segir í tilkynningu. 

Nánar á vef stofnunarinnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert