Fjármálaráðuneytið vegi „hressilega“ að flugöryggi

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Flugmenn Landhelgisgæslunnar segja fjármálaráðuneytið ráðast á verkfallslausa stétt með kröfum sínum hvað varðar kjarasamninga flugmanna Landhelgisgæslunnar. Samningarnir hafa verið lausir frá 31. desember árið 2019 og samningaviðræðurnar hafa gengið illa.

„Allan þann tíma höfum við lagt allt okkar undir til að halda uppi háu þjónustustigi þrátt fyrir undirmönnun og engan samningsvilja af hálfu ríkisins,“ segir í yfirlýsingu flugmannanna.

Þar kemur fram að þeir hafi ekki verkfallsrétt þar sem þeir eru handhafar lögregluvalds. Af þeim sökum hafa kjarasamningar þeirra verið tengdir kjarasamningum sambærilegra starfsstétta, lengst af með lögbundinni tengingu, eða til 2006.

„Fjármálaráðuneytið ræðst nú af kappi gegn þessu fyrirkomulagi, með skýrri kröfu um nýjan, frumsaminn kjarasamning án tengingar við sambærilegar starfsstéttir. Slíkt mun ekki bara hafa áhrif á kjör flugmanna heldur er það til þess fallið að stórauka starfsmannaveltu meðal flugmanna Landhelgisgæslunnar,“ segir í yfirlýsingu flugmannanna.

Verja hundruðum milljóna í þjálfun

Þar er minnst á að það að viðhalda stöðlum um leit og björgun í öllu veðri sé kostnaðarsamt og verji Landhelgisgæslan hundruðum milljóna króna í þjálfun á hverjum flugmanni. Af þessum sökum verði aukin starfsmannavelta fljót að vega upp aftengingu kjara við sambærilegar stéttir.

„Fjármálaráðuneytið vegur einnig hressilega að flugöryggi með kröfu um að afnema starfsaldurslista flugmanna sem er ein af grunnstoðum í öryggismenningu í flugi um allan heim. Það fyrirkomulag hefur reynst farsælt, enda tryggja slíkir listar gagnsæi, faglegan framgang í starfi og að flugmenn geti tilkynnt um atvik án ótta við refsingu,“ segir í yfirlýsingu flugmannanna.

Segja fagþekkingu og skilning skorta

Þeir segja að engin „málefnaleg rök“ fáist frá ráðuneytinu sem styðji afstöðu þess.

„Og raunar hefur samninganefnd flugmannanna skynjað skort á fagþekkingu og skilning á sérstöðu starfs- greinarinnar í samningaviðræðum. Fjármálaráðuneytið ræðst á verkfallsréttalausa starfsstétt og því erum við í nánast vonlausri stöðu. Við stöndum frammi fyrir kjarasetningu fremur en kjarasamningi,“ segir í yfirlýsingunni sem undirrituð er af flugmönnum Landhelgisgæslunnar.

„Enn alvarlega er að flugöryggi Landhelgisgæslunnar er stefnt í hættu með grafalvarlegum afleiðingum fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á þeirri þjónustu að halda. Ríkissjóður má búast við hundruða milljóna aukakostnaði vegna stóraukinnar starfsmannaveltu flugmanna og tilheyrandi tapi á reynslu og þekkingu. Við, flugmenn Landhelgisgæslu Íslands, lýsum hér með yfir miklum áhyggjum af framtíðarrekstri björgunarloftfara landsmanna allra, bæði til sjávar og sveita. Við krefjumst sanngjarnrar og málefnalegrar kjarasamningagerðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert