Fuglaflensa staðfest í heimilishænum

Engin dæmi eru um að fólk smitist af fuglaflensu við …
Engin dæmi eru um að fólk smitist af fuglaflensu við neyslu eggja eða fuglakjöts, hvort sem er af alifuglum eða villtum fuglum. mbl.is/Hari

Fuglaflensuveirur (H5) greindust í sýnum sem tekin voru úr heimilishænum á bænum Reykjum á Skeiðum 15. apríl.

Í tilkynningu á vef Matvælastofnunnar (MAST) segir að hænurnar hafi verið með sjúkdómseinkenni sem bentu sterklega til að um fuglaflensu væri að ræða.

Auk þess hafði fuglaflensa greinst í hrafni sem fannst dauður á bænum nokkrum dögum áður.

Þá segir að sýnin verði rannsökuð nánar á rannsóknarstofu erlendis m.a. hvað meinvirkni varðar og er niðurstöðu að vænta í næstu viku.

Mikið af tilkynningum um dauða villta fugla

Talið er nokkuð víst að hænurnar hafi smitast af villtum fuglum.

Litlar líkur eru taldar á að smit hafi borist frá hænunum í aðra alifugla en MAST mun kanna það nánar og mikilvægt er að eigendur alifugla á svæðinu fylgist vel með fuglunum sínum og tilkynni án tafar til Matvælastofnunar ef þeir verða varir við sjúkdómseinkenni eða dauða.

Þá segir að því miður er hætt við að töluvert sé um fuglaflensusmit í villtum fuglum um þessar mundir.

MAST hefur borist mikið af tilkynningum um dauða villta fugla víða á landinu.

Stofnunin fer yfir allar ábendingar og metur hvort ástæða sé til að taka sýni. Matið byggir m.a. á staðsetningu, fuglategund og tíma frá því fuglinn fannst.

Fólk smitast ekki við neyslu eggja eða fuglakjöts

Fólki er bent á að gæta ýtrustu sóttvarna ef það þarf að handleika villta fugla, hvort sem þeir eru dauðir eða lifandi. Hræ skulu annað hvort látin liggja óhreyfð eða tekin í plastpoka án þess að þau séu snert með berum höndum.

Það skal tekið fram að engin dæmi eru um að fólk smitist af fuglaflensu við neyslu eggja eða fuglakjöts, hvort sem er af alifuglum eða villtum fuglum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert