Lögreglan muni taka samtal við samfélagið um fordóma

Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði vagninn um klukkan hálf tvö í dag.
Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði vagninn um klukkan hálf tvö í dag. mbl.is/​Hari

Ríkislögreglustjóri ætlar að taka samtal við samfélagið um fordóma í kjölfar atviksins sem átti sér stað í dag þegar að sérsveitin stöðvaði ferð strætisvagns vegna ábendingar um að Gabrí­el Doua­ne Boama, sem strauk úr gæsluvarðhaldi í gær, væri um borð í vagninum. 

Strákurinn í vagninum reyndist ekki vera Gabríel en var dökkur á hörund líkt og Gabríel.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Í tilkynningunni segir að för vagnsins hafi verið stöðvuð en þegar sérsveitarmenn hafi farið inn í vagninn hafi þeir strax séð að ekki var um að ræða einstaklinginn sem var verið að leita að og yfirgáfu þeir því vagninn.

Í kjölfarið hafi móðir drengsins haft samband við ríkislögreglustjóra og lýst áhyggjum af þeirri stöðu sem komin væri upp, þar sem ungmenni í minnihlutahópi óttist að vera tekin í misgripum vegna útlits. 

Lögreglan segir að í samtalinu við móður drengsins hafi komið fram mikilvægar áherslur sem ríkislögreglustjóri ætlar að bregðast við, þ.m.t. samtal við samfélagið um fordóma.

Tilkynningin í heild sinni:

„Lögregla leitar nú ungs manns sem tilheyrir minnihlutahópi á Íslandi, en hann strauk frá lögreglu og er talinn hættulegur.

Í dag var sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til aðstoðar við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu þar sem ábending hafði borist um að sá eftirlýsti væri í strætisvagni í Reykjavík. För vagnsins var stöðvuð en þegar sérsveitarmenn fóru inn í vagninn þá sáu þeir strax að ekki var um að ræða einstaklinginn sem var verið að leita að og yfirgáfu þeir því vagninn.

Móðir drengsins hafði samband við ríkislögreglustjóra í kjölfarið og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin væri upp, þar sem ungmenni í minnihlutahópi óttist að vera tekin í misgripum vegna útlits. Í samtalinu komu fram mikilvægar áherslur sem ríkislögreglustjóri ætlar að bregðast við, þ.m.t. samtal við samfélagið um fordóma.

Ríkislögreglustjóra þykir leitt að drengurinn hafi í dag orðið hluti af þessum aðgerðum lögreglu en ábending barst um að hann væri sá sem var lýst eftir, sjálfur hafði drengurinn ekkert unnið sér til sakar.

Þá hvetur embættið til varkárni í samskiptum um þetta mál og önnur mál sem tengjast minnihlutahópum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættulegu fólki má ekki verða til þess að minnihlutahópar í okkar samfélagi upplifi óöryggi eða ótta við að samferðafólk þeirra tilkynni það til lögreglu án tilefnis.

Fordómafullar athugasemdir verða áfram fjarlægðar af miðlum lögreglunnar um málið og lokað verður fyrir frekari athugasemdir. Ábendingum sem tengjast málinu skulu eftir sem áður berast Lögreglunni í síma 112.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert