Strokufanginn sagðist vera í Vesturbænum

Gabríel Douane Boama er tvítugur.
Gabríel Douane Boama er tvítugur. Ljósmynd/Lögreglan

Grabríel Douane Boama, karlmaðurinn sem slapp úr gæsluvarðhaldi og lögreglan leitar nú, sagðist á Instagram í gærkvöldi vera í Vesturbænum. Staðsetninguna setti hann í sögu sína á samfélagsmiðlinum á níunda tímanum í gærkvöldi. 

Fréttablaðið vakti fyrst athygli á þessu.

Gabríel bætti tveimur myndum við sögu sína á Instagram í gær en sú fyrri birtist fyrir tæpum sólarhring síðan og sýndi hann með öðrum manni. 

Úr sögu Gabríels.
Úr sögu Gabríels. Skjáskot/Instagram

Lögreglan lýsti opinberlega eftir Gabríel um klukkan ellefu í gærkvöldi en hann strauk úr héraðsdómi um sjöleytið í gærkvöldi þegar mál hans var til meðferðar.

„Gabrí­el er 192 cm á hæð, með brún augu og um 85 kg að þyngd. Hann er klædd­ur í hvíta hettupeysu, galla­bux­ur og hvíta skó.

Þau sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Gabrí­els eða vita hvar hann er niður­kom­inn er vin­sam­leg­ast beðin um að hafa taf­ar­laust sam­band við lög­reglu í síma 112,“ segir í færslu lögreglunnar á Facebook.

Þá var Gabrí­el hvatt­ur til að gefa sig strax fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert