Enginn vann fyrsta vinning upp á tæpar 34 milljónir króna þegar dregið var út í lottó í kvöld.
Þá vann enginn annan vinning upp á tæpar 600 þúsund krónur.
Enginn var með allar fimm jókertölur kvöldsins réttar í réttri röð, en sex höfðu fjórar tölur réttar í réttri röð og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í sinn hlut.