Fuglaflensa útbreidd í villtum fuglum

Heiðagæsir. Mynd úr safni.
Heiðagæsir. Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fuglaflensuveirur af gerðinni H5 greindust í átta sýnum af fimmtán sem tekin voru úr villtum fuglum í vikunni og rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Fimm sýni voru með óljósa svörun og verða rannsökuð nánar, en í tveimur sýnum greindust ekki fuglaflensuveirur.

Þetta kemur fram á vef Matvælastofnunar.

Sýni sem tekin voru úr alifuglum á tveimur stöðum í vikunni voru öll neikvæð. Matvælastofnun ítrekar mikilvægi þess að fuglaeigendur verndi fugla sína gegn smiti.

Af þeim átta sýnum sem reyndust jákvæð voru þrjú úr súlum sem fundust í Njarðvík og Grindavík, þrjú úr súlum á Búðum á Snæfellsnesi, eitt úr grágæs á Akureyri og eitt úr svartbak á Húsavík.

„Ljóst er að á þessari stundu er fuglaflensa útbreidd í villtum fuglum og smithætta fyrir alifugla og aðra fugla í haldi manna því mikil. Fuglar sem haldnir eru að hluta til utandyra og í húsum þar sem smitvarnir eru ófullnægjandi, eru í mestri hættu að smitast,“ segir á vef Matvælastofnunar.

Til að koma í veg fyrir sjúkdóm í viðkomandi hópi fugla og um leið tryggja að ekki berist smit úr þeim í villta fugla er nauðsynlegt  að viðhafa stöðugar og strangar sóttvarnir þar sem fuglar eru haldnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert