Beint: Bjarni situr fyrir svörum

Bjarni Benediktsson fjármála og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála og efnahagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra mætir í dag á opinn fund fjárlaganefndar Alþingis vegna sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka.

Þingmenn sem skipa nefndina fá þá tækifæri til að spyrja hann spjörunum úr um allt sem varðar söluna. Fulltrúar á vegum Bankasýslu ríkisins sátu einnig fyrir svörum á fundi fjárlaganefndar á miðvikudag. 

Fundurinn hefst klukkan 08:30 og verður í beinni útsendingu hér að neðan. 

'



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert