„Heldurðu í alvörunni að þú komist upp með þetta?“

Bjarni Benediktsson og Björn Leví Gunnarsson á fundinum í morgun.
Bjarni Benediktsson og Björn Leví Gunnarsson á fundinum í morgun. Samsett mynd

„Bjarni, bara heldurðu í alvörunni að þú komist upp með að selja pabba þínum banka eftir allt sem að hefur gengið á undan,“ spurði Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, fjármálaráðherra á fundi fjárlaganefndar í morgun.

Þar sat Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fyrir svörum um sölu á 22,5% hluta ríkisins í Íslandsbanka. 

Þingmönnum nefndarinnar og ráðherra var heitt í hamsi og gripu ítrekað fram í fyrir hvorum öðrum. Bjarni sakaði Eyjólf Ármannsson, þingmann Flokks fólksins, m.a. um að hafa ekki stjórn á sér. Þingmenn spurðu ráðherra oft um mögulegt vanhæfi hans þegar kom að sölunni þar sem að félag í eigu föður hans, Hafsilfur, var meðal þeirra sem keyptu hluti í bankanum.

Bjarni taldi einfaldlega aldrei neitt tilefni hafa gefist til að fara ofan í hæfnismatið. 

Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins á fundinum í dag.
Eyjólfur Ármannsson þingmaður Flokks fólksins á fundinum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Allir aðrir hefðu sagt af sér

„Vafninginn, sjóð 9, sendiherra kapalinn, Falson og skýrsludótið, bara eftir allt þetta vesen sem að þú og flokkurinn er búinn að láta sko þjóðina ganga í gegnum á undanförnum áratug,“ taldi Björn Leví upp og var þá að vísa til alls þess sem gengið hafði á undan sölu ríkisins á Íslandsbanka.

Þá sagði hann að allir aðrir stjórnmálamenn, sem hafa snefil af virðingu fyrir siðmenntuðu samfélagi, væru búnir að segja af sér út af hverju einasta máli.

„Heldurðu í alvörunni að þú komist upp með þetta,“ spurði hann Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra aftur.

Áróður

Bjarni tók ekki vel í þessi orð og sakaði Björn Leví um að halda uppi áróðri gegn sér.

„Ég hef bara aldrei átt í vandræðum með það að mæta kjósendum í þessu landi, ganga í gegnum kosningar, mæta þér og öðrum mótframbjóðendum, svara fyrir mig og mín mál. Uppistaðan af öllu því sem þú ert að telja er áróður.

Og nú gegnum við til kosninga í september síðastliðinn og það var einn þingmaður sem fór með fleiri atkvæði á bakvið sig heldur en nokkur annar sem að fékk kosningu í þeim Alþingiskosningum, og það er sá sem þú ert að tala við núna,“ svaraði Bjarni.

Björn Leví spurði þá aftur hvort ráðherra teldi hollt fyrir íslenskt samfélag að upplýsingar um að fjármálaráðherra hafi selt föður sínum banka, skyldu koma upp eins og gerðist.

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata spurði Bjarna hvort hann héldi …
Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata spurði Bjarna hvort hann héldi í alvöru að hann kæmist upp með að selja pabba sínum banka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni sakaði Björn Leví enn og aftur um áróður og sagði hann það ekki standast skoðun.

Stjarnfræðilega ólíklegt

Þá sagði Björn Leví það vera stjarnfræðilega ólíklegt að forstjóri og stjórnarformaður Bankasýslunnar hafi ekki gert sér grein fyrir að Hafsilfur, félagið sem keypti hluti í Íslandsbanka 22. mars síðastliðinn, hafi verið í eigu faðir fjármálaráðherra, Benedikts Sveinssonar. 

Velti hann upp hvort það væri ekki skylda ráðherra að spyrja spurninga um hvort hann væri vanhæfur að taka ákvörðun í ferli sem er ekki almennt.

„Við vorum ekki í beinni sölu, við vorum að framkvæma útboð. Útboð þar sem við vorum með skilgreiningar á því hverjir gætu talist hæfir til þess að taka þátt. En ef að þingmaður er svona sannfærður um að stjórnsýslulög hafi verið brotin, hér hafi lög um peningaþvætti verið brotin, hér hafi lög um margar aðrar lagagreinar verið brotnar, þá hlýtur hann bara að vera rólegur því allt er þetta til skoðunar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert