Norðurland tilbúið að hefja sig til flugs

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair talaði um framtíðarsýn fyrirtækisins og …
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair talaði um framtíðarsýn fyrirtækisins og að stefnt væri á daglegt flug milli Keflavíkur og Akureyrar. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að félagið stefni að því að fljúga tvisvar á dag á milli Keflavíkur og Akureyrar í náinni framtíð. Þetta kom fram á ráðstefnunni Tökum flugið sem fór fram á Akureyri í vikunni. 

Á ráðstefnunni var fjallað um stöðuna á uppbyggingu Akureyrarflugvallar, samstarfs Niceair við Holland og framtíðarhorfur á millilandaflugi á Akureyri. Mörg erindi voru haldin og greinilegt að mikill hugur er í íbúum höfuðstaðar Norðurlands sem sjá mörg sóknarfæri í náinni framtíð.

Beint flug milli Keflavíkur og Akureyrar

 Mörg áhugaverð erindi voru haldin á ráðstefnunni en helsta athygli vakti erindi Boga Nils Bogasonar forstjóra Icelandair þar sem hann talaði um framtíðarsýn fyrirtækisins á Norðurlandi. Hann sagði að stefnt væri að því að fljúga tvisvar á dag til Akureyrar frá Keflavíkurflugvelli og verið væri að undirbúa slíkt flug á Keflavíkurvelli, þó ekki væri nein tímasetning á flugið ennþá.

Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri markaðsstofu Norðurlands var fundastjóri ráðstefnunnar.
Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri markaðsstofu Norðurlands var fundastjóri ráðstefnunnar. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

„Þetta voru góðar fréttir sem við fengum hjá Boga og áhugavert hvað það var mikill samhljómur hjá Boga og Sveinbirni Indriðasyni hjá Isavia varðandi það að byggja upp Keflavíkurflugvöll þannig að hann gæti tekið við tengifluginu og þjónusta farþega vel,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri markaðsstofu Norðurlands.

Fullt hús var á ráðstefnunni enda hugur í Norðlendingum.
Fullt hús var á ráðstefnunni enda hugur í Norðlendingum. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

 Mikil sóknarfæri í Bretlandi

Arnheiður minnist líka á sóknarfærin sem Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson framkvæmdastjóri Niceair og Chris Hagan sem stjórnar Bretlandshluta fyrirtækisins sjá í meiri tengslum milli norðurlands og Manchester og London í Bretlandi og síðar Danmörku. Bretar eru fjölmennsti ferðamannahópurinn á Íslandi yfir vetrartímann.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla hélt erindið Höldum Íslandi …
Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla hélt erindið Höldum Íslandi á lofti. Hún talaði um framkvæmdir Isavia á Akureyrarflugvelli, væntanlegar framkvæmdir við flugvallarhúsið og uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli, þar sem þrengt væri nú mjög að Reykjavíkurflugvelli með nýrri byggð. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

„Það gjörbreytir allri okkar aðstöðu til vetrarþjónustu hér fyrir norðan að hafa þessi tengsl og væntanlegt beint flug frá Keflavík til Akureyrar. Það gerir okkur kleift að byggja áfangastaðinn Norðurland upp með því að auka afþreyingu, gistingu og veitingar og að halda þessu starfandi allt árið, ekki bara yfir háannatímabilið.“

Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri Flugklasans Air 66N talaði um skref …
Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri Flugklasans Air 66N talaði um skref í átt að millilandaflugi. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

 Frá Borðeyri til Bakkafjarðar

Arnheiður segir mikilvægt að sjá möguleikana enda sé um stórt svæði að ræða.

„Við erum að horfa á svæðið alveg frá Borðeyri í Húnaþingi vestra og alveg austur að Bakkafirði. Það er starfssvæði markaðsstofunnar.“ Hún segir að markaðsstofan sé í samstarfi við Austurland með uppbyggingu á Egilsstaðaflugvelli. „Þá stækkar svæðið sem getur haft ávinning af svona flugi og getur náð alveg til Djúpavogar og jafnvel að Höfn í Hornafirði.“

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair talaði um nýja tíma á …
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair talaði um nýja tíma á Norðurlandi. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

Í erindi Anton Freys Birgissonar eiganda Geo Travel í Mývatnssveit kom fram að ferðamenn sem koma á veturna dvelji oft lengur og allt að vikutíma. Geo Travel er í samstarfi við Voigt Travel í Hollandi og var Cees van den Bosch,forstjóri hollensku ferðaþjónustunnar einnig með erindi á ráðstefnunni, en þar sjá menn mikil sóknarfæri á Norðurlandi.

Chris Hagan hjá Niceair sagði mikil sóknarfæri í Bretlandi.
Chris Hagan hjá Niceair sagði mikil sóknarfæri í Bretlandi. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

 Langur aðdragandi

Arnheiður segir að nú sé að færast kraftur í vinnu sem hefur átt sér langan aðdraganda en lengi hafi verið reynt að ná beinu flugi norður og í því hafi falist mikið samstarf, vöruþróun og þróun á áfangastaðnum. „Síðan kemur Covid og þá dettur allt í lægð, en á meðan vorum við að vinna undirbúningsvinnuna og nú eru bara allir klárir og tilbúnir að hefja sig til flugs.“

Anton Freyr Birgisson, eigandi Geo Travel talaði um reynslu heimamanna …
Anton Freyr Birgisson, eigandi Geo Travel talaði um reynslu heimamanna af starfsemi Voigt Travel og mikilvægi slíks samstarfs í framtíðinni. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.

Hún segir að lokaorð ráðstefnunnar hafi verið frá Anton Frey í pallborðsumræðunum þegar hann talaði um að nú þyrftu allir að fara upp á dekk. „Við erum að horfa á alla virðiskeðjuna, horfa á flugvöllinn, flugfélögin, ferðaskrifstofurnar og grasrótina sem er að vinna og taka á móti og þjónusta ferðamennina í heimabyggð. Þetta þarf allt að vinna saman og allir hlekkirnir að vera sterkir svo þetta gangi upp. Þá eru okkur allir vegir færir.“

Cees van den Bosch, eigandi hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel talaði …
Cees van den Bosch, eigandi hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel talaði um samstarfið við Geo Travel og mikilvægi vel samsettra ferðapakka í uppbyggingu nýrra áfangastaða. Ljósmynd/Rögnvaldur Helgason.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert