Erla Sigríður nýr skólameistari Flensborgarskólans

Erla Sigríður Ragnarsdóttir.
Erla Sigríður Ragnarsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Erla Sigríður Ragnarsdóttir hefur verið skipuð skólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði til fimm ára.

Þetta kemur fram í tilkynningu en alls sóttu fimm um stöðuna.

Erla hefur lokið námi í fjölmiðla- og stjórnmálafræði hjá University of Wisconsin–Stevens Point. Hún er með B.A. gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands, Cand.Mag. í sögu og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Árósum, Dipl.Ed. í stjórnun og fræðslu frá Háskóla Íslands og MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Þá hefur hún lokið kennslufræði til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi hjá Háskóla Íslands.

Erla Sigríður hefur starfað við Flensborgarskólann í Hafnarfirði frá árinu 2002. Fyrstu ár sín í skólanum starfaði hún sem sögukennari en frá 2011 hefur hún gegnt ýmsum stjórnunarstöðum innan skólans, þ.e. stöðu sviðsstjóra félagsgreina, mannauðsstjóra, aðstoðarskólameistara og setts skólameistara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert