Skert notkun á einni flugbraut í Keflavík um tíma

Gera á nýja 1.200 metra langa flugvélaakbraut sem mun tengja …
Gera á nýja 1.200 metra langa flugvélaakbraut sem mun tengja flugbraut við flughlað flugstöðvarinnar. Mynd úr safni. mbl.is/ÞÖK

Önnur tveggja flugbrauta Keflavíkurflugvallar, flugbraut 10/28, verður ekki í daglegum rekstri í allt að fimm vikur í sumar, það er í lok maí og fram í júní.

Ekki verður nein skerðing á afkastagetu flugvallarins vegna þessa og hægt verður að nota brautina ef þess gerist þörf, að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia. Hann segir mikilvægt að hafa í huga að flugbrautum á Keflavíkurflugvelli sé aldrei lokað, en starfsemi á þeim kunni að skerðast við framkvæmdir eins og í þessu tilviki.

Notkun á flugbrautinni skerðist vegna framkvæmda við gerð nýrrar 1.200 metra langrar flugvélaakbrautar (Mike). Hún mun tengja saman flughlað flugstöðvarinnar og flugbrautir. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert