Ný þjóðarhöll verði klár 2025

Laugardalshöll.
Laugardalshöll. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Stefnt er að því að framkvæmdum við byggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal ljúki árið 2025.

Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu í dag.

Þjóðarhöllin mun uppfylla kröfur fyrir alþjóðlega keppni í innanhússíþróttagreinum og stórbæta íþróttaaðstöðu fyrir skóla og íþróttafélög í Laugardal, að því er kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að ríki og Reykjavíkurborg muni tryggja fjármögnun á stofnkostnaði í langtímaáætlunum sínum. Kostnaðarmat muni liggja fyrir eftir frumathugun og endanlega hönnum.

Kostnaðarskipting taki mið af nýtingu mannvirkisins sem og þeim kröfum sem hvor aðili hefur. Annars vegar ríkið vegna þarfa sérsambanda og alþjóðlegra krafna til keppnisaðstöðu landsliða og hins vegar Reykjavíkurborg vegna þarfa íþróttafélaga og íþróttakennslu.

„Þegar liggja fyrir greiningar á þörfum sérsambanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) fyrir æfingar og keppnir landsliða og á þörfum Reykjavíkurborgar vegna íþróttafélaga og íþróttakennslu skóla,“ segir í tilkynningunni.

„Sérstök framkvæmdanefnd verður stofnuð um þjóðarhöll í innanhússíþróttum sem mun sjá um frumathugun og undirbúning á fyrirkomulagi byggingaframkvæmda, s.s. vegna hönnunar, tæknilegrar útfærslu, rekstrarforms og hvernig staðið verður að fjármögnun. Notkunarmöguleikar mannvirkisins verða kannaðir til hlítar.“

Einnig kemur fram að ríki og borg ætli að standa saman að hugmyndasamkeppni um hönnun mannvirkisins og útlit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert