Fékk öll atkvæðin

Steinþór Jónsson er formaður FÍB en hann rekur einnig Hótel …
Steinþór Jónsson er formaður FÍB en hann rekur einnig Hótel Keflavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Steinþór Jónsson, sitjandi formaður til 15 ára, hlaut 100% atkvæða í formannskosningu á landsþingi Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Félagið segir bifreiðaeigendur ekki eiga að greiða fyrir uppbyggingu borgarlínu í gegnum bifreiðagjöld og lækka eigi skatta á bifreiðaeigendur. 

Þetta kemur allt fram í nýjum ályktunum af landsþingi FÍB sem fagnar yfirlýsingu stjórnvalda um sundabraut. Yfirlýsingu stjórnar má lesa hér og ályktanir landsþings hér

Þar segir einnig að banna eigi verðmismun vátryggingafélaga milli nýrra og eldri viðskiptavina og reiknivél ætti að vera á heimasíðu tryggingafélaga til að auka gegnsæi.

Afgerandi formannskosning

Steinþór Jónsson, sitjandi formaður til 15 ára, hlaut 100% atkvæða í formannskosningu á landsþinginu gegn fyrrverandi varaformanni sem fram fór í vikunni á Hilton Nordica Reykjavík.

,,Ég er þakklátur fyrir þann sterkan stuðning sem fram kom á landsþinginu eftir 15 ár í þessu embætti. Við erum með yfir 18 þúsund fjölskyldur sem félagsmenn svo okkar ábyrgð sem neytendafélag er mikil og af nægu að taka,“ segir Steinþór og nefnir sem dæmi að bílatryggingar séu nálægt helmingi hærri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum.

Steinþór sagði í ræðu sinni á þinginu að það þurfi að taka tryggingagjöld hér á landi föstum tökum. Auka þurfi aðhald varðandi eldsneytisgjöld sem og skatta á bifreiðaeigendur.

Leggjast gegn bifreiðasköttum

Í fréttatilkynningu frá þinginu segir: „Það er verið að þrengja að bifreiðum m.a. með Borgarlínu sem við höfum ekkert á móti sem slíka en sættum okkur ekki við þrengingu frá því sem nú er. Þar af síður að fjármögnun Borgarlínu eða almenningssamgangna almennt sem komi fram í bifreiðasköttum.“

„Þá er rafbílavæðing mjög hröð og hugmyndir um skattlagningu rafbíla yfirvofandi svo nú er tími fyrir okkur að vera vakandi fyrir okkar félagsmenn. Við saman ætlum að ná góðum árangri fyrir okkar félagsmenn,“ segir Steinþór Jónsson.

Nýkjörin stjórn FÍB er skipuð eftirtöldum einstaklingum: Steinþór Jónsson, formaður. Kristín Sigurðardóttir, Reykjavík, Ingigerður Karlsdóttir, Reykjavík, Viggó Helgi Viggósson, Reykjanesbæ, og Einar Bárðarson, Hafnarfirði. Í varastjórn sitja Ástríður Sigurðardóttir, Reykjanesbæ, Bogi Auðarson, Kópavogi, og Halldór Óli Kjartansson, Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert