Gísli játar að hafa beitt ofbeldi

Gísli Hauksson er einn stofnandi GAMMA.
Gísli Hauksson er einn stofnandi GAMMA. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gísli Hauksson, fyrrverandi forstjóri og annar stofnandi GAMMA Capital Management, hefur játað að hafa beitt fyrrverandi sambýliskonu sína ofbeldi fyrir tveimur árum.

Ríkisútvarpið greinir frá.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is fer saksóknari í málinu fram á tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm yfir Gísla.

Í ákæru kem­ur fram að Gísla sé gefið að sök að hafa ít­rekað tekið fyrrverandi sambýliskonu sína kverka­taki, skellt henni utan í vegg og þrengt að hálsi henn­ar svo hún átti erfitt með anda­rdrátt og féll í gólfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert