Þórólfur Guðnason lætur af störfum

Þórólfur Guðnason hættir í september.
Þórólfur Guðnason hættir í september. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt formlega upp störfum frá og með 1. september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættis landlæknis.

„Ástæður uppsagnarinnar eru bæði persónulegar og faglegar sem eru þær helstar, að nú er núverandi bylgja Covid-19 að mestu yfirstaðin og nýr kafli að hefjast í starfsemi sóttvarnalæknis. Í þessum nýja kafla felast m.a. uppgjör á viðbrögðum við Covid faraldrinum með það fyrir augum að bæta viðbrögð við faröldrum framtíðarinnar og vinna við þau lögboðnu verkefni sem sóttvarnalækni er ætlað að sinna en hafa að miklu leyti fallið niður á tímum Covid-19,“ segir í tilkynningunni. 

Að auki mun koma til lögskipaðra starfsloka Þórólfs á næsta ári er hann verður sjötugur.  

Í tilkynningunni kemur fram að þó að Ísland sé á góðum stað hvað varðar faraldurinn sé honum ekki lokið á heimsvísu og að á meðan svo sé þurfi að fylgjast náið með tilkomu  nýrra afbrigða veirunnar og hversu vel og lengi ónæmið sem einstaklingar hafa náð mun vara.  

„Allt hér að ofan mælir því með að sóttvarnalæknir láti af af störfum á þessum tímapunkti. Embætti landlæknis mun á næstu dögum auglýsa starf sóttvarnalæknis,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert