Vill afnema refsinæmi heilbrigðisstarfsfólks

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir lagabreytingu sem kveður á um …
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir lagabreytingu sem kveður á um að afnema refsinæmi heilbrigðisstarfsmanna, brýna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búið er að setja af stað vinnu í heilbrigðisráðuneytinu sem lýtur að lagabreytingum sem kveða á um að afnema refsinæmi heilbrigðisstarfsfólks. 

Frá þessu greindi Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á ársfundi Landspítala sem fer nú fram í Hörpu. 

Ráðherra sagði öryggiskennd dýrmætan þátt í heilbrigðisþjónustu en lagði jafnframt áherslu á að hún yrði að vera gagnkvæm.  

„Það er afar brýnt að við leggjum til lagabreytingar sem varða það að afnema refsinæmi heilbrigðisstarfsmanna,“ sagði Willum og uppskar lófatak starfsmanna. „Það er í þessu tilliti að við verndum þessa gagnkvæmu öryggiskennd.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert