Loka þurfti Hvalfjarðargöngunum

Ljósmynd/Vegagerðin

Bíll bilaði í Hvalfjarðargöngunum um klukkan hálf fjögur í dag og var göngunum lokað að sögn Vegagerðarinnar. 

Að sögn ökumanns á svæðinu mynduðust langar raðir. 

Dráttarbíll var sendur á staðinn til þess að draga bílinn í burtu og voru göngin aftur opnuð um 40 mínútum síðar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert