Óvissustigi lýst yfir vegna jarðskjálftahrinu

Landris hefur verið undir Reykjanesi við Þorbjörn.
Landris hefur verið undir Reykjanesi við Þorbjörn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. 

„Aukin jarðskjálftavirkni hefur verið síðustu vikurnar og hafa skjálftar yfir 4 mælst um helgina,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

Þá eru íbúar hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. 

Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert