Finna ekki skip í stað Baldurs

Ferjan Baldur.
Ferjan Baldur. mbl.is/Sigurður Bogi

Ekki hefur tekist að finna skip í stað Breiðafjarðarferjunnar Baldurs þrátt fyrir mikla leit. Búið er að framlengja samning um áframhaldandi siglingar ferjunnar.  

Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra í svari við fyrirspurn Sigurðar Páls Jónssonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi um stöðu mála þegar kemur að Baldri.

Sigurður Páll sagði öryggismál ferjunnar í ólagi og skipið ekki samboðið þeirri þjónustu sem farið er fram á. Ef smíða eigi nýtt skip sé ekki boðlegt að núverandi ferja sé í rekstri þau ár sem það tekur, því hún sé orðin gömul og úr sér gengin. Finna þurfi skip í millitíðinni.

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhannsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigurður Ingi sagði skip sem væri hægt að nota í millitíðinni ekki hafa fundist þrátt fyrir ítrekaða leit. Herjólfur III gæti siglt í staðinn á meðan verið væri að smíða nýja ferju. 

Sigurður Páll kvaðst eiga bágt með að trúa að ekki finnist skip og hvatti fólk á vegum ráðherra til að reyna betur. „Herjólfur gamli er ágætis skip en það er líka gamalt og lúið, “ sagði hann og talaði um neyðarlendingu í þeim efnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert