Áhrif skjálfta meiri á höfuðborgarsvæðinu en í Grindavík

Landris á Reykjanesskaga er undir eða við Þorbjörn norður af …
Landris á Reykjanesskaga er undir eða við Þorbjörn norður af Grindavík. Bláa lónið og Svartsengi eru þar í næsta nágrenni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar hjá Veðurstofunni, sagði í kvöld á íbúafundinum í Grindavík að ef skoðað væri hvernig skjálftarnir dreifist á Reykjanesskaganum megi sjá að þeir séu dreifast allt í kring.

Sagði Kristín að búast mætti við því næstu daga og mánuði að jarðskjálftahrinan myndi halda áfram, en skjálftarnir stafa af þrýstingi vegna kviku sem vantar meira rými.

Virknin muni halda áfram á svipuðum slóðum við Þorbjörn/Svartsengi og á Reykjanesskaganum og að það verði að teljast líklegt að það styttist í næsta stóra skjálftann, en síðast reið slíkur skjálfti yfir fyrir um það bil 50 árum (6-6,5 að stærð).

Hún benti þó á að áhrif yrðu meiri á höfuðborgarsvæðinu en í Grindavík vegna skjálfta austur af Kleifarvatni.

Frá virkjuninni við Svartsengi.
Frá virkjuninni við Svartsengi. mbl.is/Sigurður Bogi

Skemmdir urðu á virkjuninni

Krist­inn Harðar­son, fram­kvæmda­stjóri fram­leiðslu HS orku, flutti einnig erindi á fund­in­um og benti á að virkj­un­in í Svartsengi sé mik­il­væg Reykja­nesskag­an­um. 

Hann sagði að jarðskjálfta­hrin­urn­ar í fyrra hefðu haft sára­lít­il áhrif á virkj­un­ina. Hún hefði staðist þol­próf þess­ara nátt­uru­afla og eng­in frá­vik orðið á rekst­rinum.

Þó urðu nokkr­ar skemmd­ir á virkj­un­inni, en t.d. komu upp sprung­ur í bygg­ing­um HS orku, hrun varð í grjót­hleðslum og heita­vatnstank­ur skemmd­ist.

HS orka mun hafa farið ít­ar­lega yfir viðbragðsáætlan­ir ef eld­gos skyldi hefjast í ná­grenni við virkj­un­ina.

Búið er að skil­greina flótta­leiðir frá Svartsengi, auk þess sem áætlan­ir hafa verið í bígerð um hraun­flæðivarn­ir, en Krist­inn sagði að ef hraun kæmi upp á óheppi­leg­um stað yrði mögulega gripið til slíkra ráðstaf­ana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert