Rigning í allan dag

Rigning. Rigning í allan dag á Suðausturlandi en annars skúrir.
Rigning. Rigning í allan dag á Suðausturlandi en annars skúrir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Austanátt spáir 5 til 13 metrar á sekúndu í dag. „Rigning í allan dag á Suðausturlandi en annars skúrir, einkum síðdegis og þurrt að kalla norðantil. Hiti 6 til 15 stig, svalast á Austfjörðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Svipað veður áfram

„Á morgun verður mjög svipað veður. Austlæg eða breytileg átt 3-8 og rigning með köflum á suðaustanverðu landinu. Annars úrkomulítið en stöku skúrir eftir hádegi. Hiti 10 til 16 stig.

Á laugardag verður norðaustanátt með rigningu eða súld fyrir norðan og austan. Þurrt og bjart suðvestantil en þar myndast stöku skúrir seint um daginn. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast syðst,“ segir enn fremur.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Rigning með köflum á Suðausturlandi, en stöku skúrir í öðrum landshlutum, einkum síðdegis. Hiti 10 til 16 stig.

Á laugardag:
Norðan 5-13 m/s. Súld eða rigning norðan- og austanlands. Bjart með köflum sunnan heiða en stöku skúrir síðdegis. Hiti frá 4 stigum við norðurströndina, upp í 15 stig sunnanlands.

Á sunnudag:
Norðlæg átt, skýjað og lítilsháttar væta á norðanverðu landinu, en stöku skúrir syðra. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en skúrir sunnan- og vestantil. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast á Suðvesturlandi.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir austlæga átt, dálitla rigningu og hita 7 til 12 stig.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert