Þrjú ökutæki skemmdust í eftirför lögreglu

Mildi þykir að enginn hafi meiðst.
Mildi þykir að enginn hafi meiðst. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrjú ökutæki skemmdust þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti ökumanni bifreiðar eftirför á tíunda tímanum í morgun eftir að hann virti að vettugi stöðvunarmerki hennar.

Ökumaðurinn ók Reykjanesbraut til norðurs uns för hans var stöðvuð á móts við Stekkjarbakka, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þrjú ökutæki skemmdust við eftirförina, en engin slys urðu á fólki. Mildi þykir að ekki fór verr, en bifreiðinni var ekið langt yfir leyfðum hámarkshraða.

Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi og færður á lögreglustöð. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert