Tímamótasamningur við danshöfunda

Úr Rómeó og Júlíu í Þjóðleikhúsinu þar sem danshöfundar voru …
Úr Rómeó og Júlíu í Þjóðleikhúsinu þar sem danshöfundar voru þau Ernesto Camilo Aldazábal Valdés og Rebecca Hidalgo. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Félag íslenskra listamanna í kvikmyndum og sviðslistum (FÍL) og íslenska ríkið hafa undirritað kjarasamning fyrir danshöfunda í Þjóðleikhúsinu og segir í tilkynningu að um sé að ræða tímamótasamning þar sem þetta sé í fyrsta sinn sem danshöfundar eigi aðild að kjarasamningi við ríkið vegna starfa sinna við Þjóðleikhúsið.

„Samningurinn markar einnig þau tímamót að lokið hefur verið við kjarasamninga fyrir alla listamenn innan FÍL sem starfa við Þjóðleikhúsið. Með kjarasamningnum njóta danshöfundar nú sambærilegra kjara á við aðra listræna stjórnendur leiksýninga innan leikhússins,“ segir í tilkynningunni. 

„Ég er virkilega glöð að þessi samningur er í höfn. Hann styrkir og jafnar stöðu danshöfunda sem listrænna stjórnenda innan leikhússins. Þetta er liður í því að styrka umgjörð í kringum listir og menningu. Um er að ræða mikilvægar atvinnugreinar sem glæða samfélagið lífið og auka lífsgæði okkar allra,“ er haft eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, en málefni Þjóðleikhússins heyra undir ráðuneyti hennar.  

„Þetta er tímamótasamningur og ég er bæði þakkláti og ánægð með þennan áfanga. Stærsti hluti félagsmanna í FÍL eru sjálfstætt starfandi listamenn.  Það er metnaðarmál og markmið félagsins að allir félagsmenn í FÍL njóti verndar kjarasamnings – það er jafnréttismál, minnkar aðstöðumun listamanna og viðsemjenda, hvetur til fagmennsku og stuðlar að auknu gagnsæi í meðferð opinberra fjármuna,“ er haft eftir Birnu Hafstein, formanni FÍL. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert