Enn í varðhaldi vegna hnífstunguárásar

Lögreglan að störfum fyrir utan Prikið.
Lögreglan að störfum fyrir utan Prikið. mbl.is/Ari

Maðurinn sem var handtekinn eftir hnífstunguárás í miðbæ Reykjavíkur 15. apríl er enn í gæsluvarðhaldi.

Þetta staðfestir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar, og bætir við að málið sé enn í rannsókn.

Tveir karl­menn voru hand­tekn­ir vegna árásarinnar, grunaðir um að hafa stungið mann með eggvopni fyr­ir utan skemmti­staðinn Prikið. Sá sem ráðist var á hlaut lífs­hættu­lega áverka og var flutt­ur með hraði á sjúkra­hús þar sem hann gekkst und­ir aðgerð. 

Farið var fram á þriggja vikna gæslu­v­arðhald yfir öðrum mann­in­um 16. apríl, sem var síðan framlengt. 

Þeir sem handteknir voru og fórn­ar­lambið eru karl­menn í kring­um tví­tugt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert