Lagning nýs sæstrengs hafin við Þorlákshöfn

Lagning nýja sæstrengsins Íris hófst við Hafnarvík við Þorlákshöfn í …
Lagning nýja sæstrengsins Íris hófst við Hafnarvík við Þorlákshöfn í morgun. Sæstrengurinn mun liggja til Galway á Írlandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í morgun hófst lagning nýs sæstrengs á milli Íslands og Írlands, en sæstrengurinn hefur fengið nafnið Íris. Vinnuvélar voru mættar í Hafnarvík við Þorlákshöfn, en úti fyrir ströndu var svo kaplaskipið Durable sem tekur við strengnum og mun leggja hann yfir Atlantshafið til Galway á Írlandi.

Skipið kom til landsins á föstudaginn og var farið beint í að undirbúa lagninguna sem svo hófst formlega í morgun.

Það eru starfsmenn bandaríska strengjaframleiðandans SubCom sem sjá um lagninguna.

Strengurinn er í eigu Farice ehf., félags sem er í fullri eigu ríkisins, en félagið hefur síðustu ár unnið að und­ir­bún­ingi lagn­ing­ar nýja strengs­ins en með hon­um er nokk­urn veg­inn tryggt að landið verði aldrei sam­bands­laust. Fyr­ir eru tveir fjar­skipt­a­streng­ir, Farice 1, sem ligg­ur til Skot­lands með teng­ingu við Fær­eyj­ar, og Danice sem ligg­ur til Dan­merk­ur.

Gert er ráð fyr­ir að streng­ur­inn verði, ef allt geng­ur sam­kvæmt áætl­un, til­bú­inn til notk­un­ar fyr­ir árs­lok.

Kaplaskipið Durable og starfsfólk á vegum bandarískra strengjaframleiðandans SubCom sér …
Kaplaskipið Durable og starfsfólk á vegum bandarískra strengjaframleiðandans SubCom sér um lagningu nýja sæstrengsins sem liggur milli Íslands og Írlands. Strengurinn hefur fengið nafnið Íris. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert