Viðar ráðinn í hóp stjórnenda hjá Eflingu

Viðar Þorsteinsson var áður framkvæmdastjóri Eflingar.
Viðar Þorsteinsson var áður framkvæmdastjóri Eflingar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Eflingar hefur samþykkt ráðningar hóps stjórnenda og lykilstarfsmanna sem hefja munu störf á skrifstofum Eflingar á næstu vikum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

Líkt og áður hefur verið greint frá tekur Perla Ösp Ásgeirsdóttir við starfi framkvæmdastjóra.

Sex karlmenn ráðnir

Í hópi stjórnenda sem stjórn hefur nú samþykkt að ráða til starfa eru þeir Magnús Rínar Magnússon sviðsstjóri þjónustu, Ingólfur B. Jónsson sviðsstjóri vinnuréttinda og Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri en hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar.

Einnig hefur verið gengið frá ráðningu Sveins Ingvasonar í stöðu forstöðumanns orlofshúsa, en Sveinn hefur um árabil verið yfirmaður orlofshúsamála Eflingar.

Stefán Ólafsson hefur verið ráðinn sérfræðingur í vinnumarkaðs- og lífskjararannsóknum og Ragnar Ólason tekur við starfi sérfræðings í kjarasamningsgerð.

Sólveig sátt með ráðningarnar

Í tilkynningunni segir að allir þessir einstaklingar hafi farið í gegnum viðtöl og hæfnismat hjá ráðningarstofu en með þessum ráðningum hafa stjórnunarstöður allra helstu sviða starfseminnar á skrifstofu Eflingar verið mannaðar.

Lokafrágangur stendur nú yfir á ráðningum almennra starfsmanna en segir jafnframt að mikið af umsóknum hafi borist í störf sem auglýst voru 16. apríl.

Greint hefur verið frá því að nýir starfs­menn stétt­ar­fé­lags­ins fái ekki ótíma­bundna ráðning­ar­samn­inga held­ur verður ein­ung­is samið við þá til hálfs árs til að byrja með.

„Ráðningar hafa gengið framar vonum. Rekstur skrifstofunnar er og verður í góðum höndum. Næsta skref er að ganga frá ráðningum almennra starfsmanna, og vonir standa til að því verði lokið innan skamms,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert