Fjölbreyttur hópur brautskráðist úr FB

Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í Hörpunni í gær.
Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í Hörpunni í gær. Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson Thors

Alls voru 138 brautskráðir úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í gær, þar af 62 með stúdentspróf, 17 af húsasmiðabraut, 22 af rafvirkjabraut, 12 af snyrtibraut, 31 af sjúkraliðabraut og 9 af starfsbraut.

Verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut Elísa Nína Luengas Resgonia en hún útskrifaðist af félagsvísindabraut. Hún fékk einnig verðlaun fyrir bestan árangur í ensku, sálfræði og félagsgreinum sem og viðurkenningu frá Soropimistaklúbbi Hóla og Fella.

Erna Dagbjört Jónsdóttir, sem útskrifaðist af opinni braut, hlaut viðurkenningu úr styrktarsjóði Kristínar Arnalds og Rakel Jóna Ásbjörnsdóttir, sem útskrifaðist af myndlistabraut, hlaut viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Breiðholts fyrir félagsstörf.

Verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut Elísa Nína Luengas …
Verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut Elísa Nína Luengas Resgonia, félagsvísindabraut. Hún fékk líka verðlaun fyrir bestan árangur í ensku, sálfræði og félagsgreinum sem og viðurkenningu frá Soroptimistaklúbbi Hóla og Fella. Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson Thors
Rakel Jóna Ásbjörnsdóttir, sem útskrifaðist af myndlistabraut og hlaut viðurkenningu …
Rakel Jóna Ásbjörnsdóttir, sem útskrifaðist af myndlistabraut og hlaut viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Breiðholts fyrir félagsstörf. Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson Thors
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert