Minna landris gefi óljósar upplýsingar

Jarðhræringar við Þorbjörn gætu haldið áfram þótt landris hafi minnkað.
Jarðhræringar við Þorbjörn gætu haldið áfram þótt landris hafi minnkað. mbl.is

Minna landris síðustu daga við Þorbjörn og Svartsengi gefur ekki til kynna að jarðhræringum á svæðinu sé lokið. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur. 

„Það er ekki hægt að draga of miklar ályktanir, þetta er ekki samfellt ferli. Við vitum eftir á hvenær þetta hættir. En það er staðreynd að það hefur verið minni virkni síðustu daga og hægir á landrisinu,“ segir Magnús.

Enn mælast skjálftar á svæðinu – ellefu yfir tveimur stigum síðustu tvo daga en sá stærsti var 4,4 stig, á laugardagsmorgunn.

„Þetta er ekki búið. Það er alltof snemmt að segja til um það hvort þetta sé smá hlé eða búið,“ segir Magnús. Tíminn leiðir í ljós hvernig virknin verður á svæðinu næstu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert