Fasteignamat hækkar um 19,9%

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% frá yfirstandandi ári …
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% frá yfirstandandi ári og verður 12.627 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2023. Sigurður Bogi Sævarsson

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% frá yfirstandandi ári og verður 12.627 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2023. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan, þegar fasteignamat hækkaði um 7,4 % á landinu öllu.

Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 20,2% en um 19,2% á landsbyggðinni.

Hækkar mest í Hveragerði

Af einstaka sveitarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest í Hveragerðisbæ eða um 32,3%. Hækkunin nemur 32,1% í sveitarfélaginu Árborg og um 29,3% í Skorradalshreppi. Minnsta hækkun er í Dalvíkurbyggð eða um 8,1% og 9,3% í Dalabyggð og Skútustaðahreppi.

Íbúðamat hækkar um 23,6% á höfuðborgarsvæðinu

Samanlagt mat íbúða á öllu landinu hækkar um 23,6% á milli ára og verður alls 9.126 milljarðar króna, þar af hækkar sérbýli um 25,4% en fjölbýli hækkar um 21,6%.

Almennt er hækkun á íbúðarmati á höfuðborgarsvæðinu 23,6% en 23,7% á landsbyggðinni.

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 10,2% á öllu landinu, en um 9,6% hækkun er á höfuðborgarsvæðinu og um 11,5% hækkun á landsbyggðinni.

Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 20,3% á öllu landinu, en mesta hækkunin er á höfuðborgarsvæðinu, þar sem sumarhús hækka um 28,6%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert