Steingrímur stýrir spretthópi

Steingrímur J. Sigfússon verður formaður spretthópsins.
Steingrímur J. Sigfússon verður formaður spretthópsins. mbl.is/Árni Sæberg

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að skipa þriggja manna spretthóp sem skila skal ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi.

Hópurinn skal skila af sér 13. júní og verður niðurstaða vinnunnar kynnt fyrir ríkisstjórn daginn eftir. 

„Verð á helstu aðföngum hefur hækkað gríðarlega í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og litlar líkur eru á að þær hækkanir gangi til baka á næstu mánuðum eða jafnvel misserum. Þessi þróun mun, að öllu óbreyttu, kippa stoðum undan rekstri bænda m.a. flestra sauðfjár- og nautgripabúa. Þannig kunni framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri með tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi. Það liggur fyrir að áhrif innrásarinnar í Úkraínu verða langvinn og því ljóst taka verður stöðuna alvarlega,“ segir í tilkynningu.

Formaður hópsins verður Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans sitja í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Matvælaráðuneytið verður hópnum til aðstoðar.

Hópurinn skal greina einstaka valkosti í stöðunni. Huga þarf sérstaklega að fæðuöryggi, verðlagi og hagsmunum neytenda og bænda í þessu samhengi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert