Sá grunaði í rúmlega þriggja vikna gæsluvarðhald

Barðavogur 22, þar sem morðið átti sér stað.
Barðavogur 22, þar sem morðið átti sér stað. mbl.is/Óttar

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til fyrsta júlí á grundvelli almannahagsmuna sem og rannsóknarhagsmuna, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vegna manndráps í austurborginni í gærkvöldi.

Klukkan hálf átta í gærkvöldi fékk lögregla tilkynningar um yfirstandandi líkamsárás fyrir utan hús í austurborginni. Þegar lögregla og sjúkralið komu á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og andaði ekki.

Nágrannar

Strax voru hafnar endurlífgunartilraunir á manninum en þær báru ekki árangur. Sakborningur var á staðnum og var hann þegar handtekinn og fluttur á lögreglustöð.

Sakborningur og hinn látni voru nágrannar en ekki er talið að þeir tengist að öðru leyti, að því sem fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi og getur lögregla því ekki tjáð sig frekar um málsatvik að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert