Ég lærði margt af Björgu í Vigur

Hafsteinn Hafliðason í gróðurhúsi sínu.
Hafsteinn Hafliðason í gróðurhúsi sínu. Ljósmynd/Úr bókinni Allt í blóma.

„Mykjan úr fjósinu fór í kálgarðana en taðið úr lambhúsunum fór í kartöflugarðinn,“ segir Hafsteinn Hafliðson þegar hann rifjar upp æskuárin og það sem hann lærði af Björgu í Vigur um garðyrkju. Hafsteinn hefur áratuga reynslu af garðyrkju og hefur nú sent frá sér bók sem sumir segja vera biblíu áhugafólks um pottaplöntur. Þar leiðbeinir hann um pottablómarækt við íslenskar aðstæður.

Ég hef verið í jurtum frá því ég man eftir mér. Ég hafði sem krakki strax áhuga á plöntum og garðyrkju, enda ólst ég upp við þetta sem eðlilegan hlut, en ég þótti reyndar svolítið skrýtinn,“ segir Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumeistari og höfundur nýrrar bókar, Allt í blóma, pottablómarækt við íslenskar aðstæður. Í þeirri bók greinir hann frá öllu því sem huga ber að í sambýli við pottablóm, svo þau fái að vaxa og dafna.

„Pottablóm voru á flestum bæjum í Djúpinu meðan ég var að alast upp þar, en ég flutti ungur með móður minni í Vigur í Ísafjarðardjúpi þegar hún giftist Baldri í Vigur. Mamma hét Sigríður Salvarsdóttir, en hún var ekki mikið í plöntunum, aftur á móti var tengdamóðir hennar, Björg Björnsdóttir, mikil jurtakona. Björg í Vigur eins og hún var alltaf kölluð var ekkert að kenna mér meðvitað, en ég tók vel eftir því sem hún gerði í tengslum við jurtir. Hún var mikið fyrir lífræna ræktun, það mátti aldrei koma tilbúinn áburður í matjurtagarðana hennar og hún hafði skoðun á því frá hvaða skepnum áburður væri fyrir ákveðnar plöntur. Til dæmis fór mykjan úr fjósinu í kálgarðana en taðið úr lambhúsunum fór í kartöflugarðinn. Hún lá ekki á skoðunum sínum hún Björg, þessi kona sem var fædd undir lok nítjándu aldar og alin upp norður í Skagafirði á Veðramóti í Gönguskörðum.

Ljósmynd/Úr bókinni Allt í blóma

Björg lærði margt um umhirðu plantna af fyrri kynslóðum, en móðurbróðir hennar var Stefán Stefánsson sem skrifaði Flóru Íslands. Jurtaþekkingin náði því langt aftur í fjölskyldunni en auk þess bjó hún vel að því að Guðrún systir hennar lærði garðyrkju í Danmörku og útskrifaðist þaðan sem garðyrkjukona,“ segir Hafsteinn og bætir við að hann hafi sjálfur einnig notið skólunar hjá móðurömmu sinni Ragnheiði í Reykjafirði sem og hjá Rannveigu ljósmóður á Eyri í Seyðisfirði.

„Þar voru stofur fullar af blómum. Faðir minn, Hafliði Jónsson, var líka garðyrkjumaður og starfaði lengi fyrir Reykjavíkurborg sem garðyrkjustjóri. Kannski kom því af sjálfu sér að ég fór í garðyrkjunám til Svíþjóðar þegar ég var 17 ára. Maður tekur því sem kemur til manns og maður getur sinnt.

Þegar ég fór út til náms rétt eftir seinni helming liðinnar aldar, þá voru áherslur aðrar í garðyrkju þar en hér heima á Íslandi. Þá voru enn herragarðar í Svíþjóð sem þurftu á garðyrkjumönnum að halda og þeir þurftu að vera jafnvígir á ávaxtatré, grasflöt, matjurtaland, pottablóm og jafnvel blómaskreytingar. Ég fékk nasasjón af þessu í náminu og seinna vann ég um tíma í Svíþjóð við garðyrkjuráðgjöf í Garðyrkjumiðstöð utan við Stokkhólm.“

Lesa má nánar um málið í fimmtudagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert