Kviknaði í yfirgefnu húsi í Úlfarsárdal

Búið er að slá á mestallan eldinn.
Búið er að slá á mestallan eldinn. mbl.is/Ari Páll

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kvöld vegna eldsvoða á milli Lambhaga og verslunarinnar Bauhaus. Að sögn varðstjóra er líklegast um yfirgefið hús að ræða.

Þrjár stöðvar eru staðnum og hafa þær náð að slá á mestallan eldinn. Líklega þarf þó að rífa þakið af húsinu til þess að komast í glæðurnar.

Ljós reykur stendur nú af húsinu í átt að Lambhaga en einnig kemur mikil gufa þegar vatnið, sem slökkviliðið notar, gufar upp. 

Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki. 

Mikil reykur stafaði af húsinu fyrr í kvöld.
Mikil reykur stafaði af húsinu fyrr í kvöld. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is/Ari Páll Karlsson
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á staðinn.
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á staðinn. mbl.is/Ari Páll Karlsson
mbl.is/Ari Páll Karlsson
mbl.is/Ari Páll Karlsson
mbl.is/Ari Páll Karlsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert