Fyrstu tilfelli af apabólu greind á Íslandi

Sýnin verða send til útlanda til staðfestingar.
Sýnin verða send til útlanda til staðfestingar.

Allar líkur eru á því að fyrstu tilfelli af apabólu hafi greinst hér á landi. Í gær greindust tveir karlmenn á miðjum aldri með apabólu á fyrsta prófi. Sýni verða send til útlanda eins fljótt og verða má, til að staðfesta greininguna. Þetta kemur fram á vef Embættis landlæknis.

Yfirgnæfandi líkur eru á að greiningin sé rétt en smitin má rekja til ferðalags til Evrópu. Hvorugur mannanna er alvarlega veikur. 

„Eins og kom fram í fréttatilkynningum sóttvarnalæknis 20. og 23. maí síðastliðinn, þá er apabóla ekki bráðsmitandi veirusjúkdómur. Hún smitast aðallega við nána og langvarandi snertingu eins og kynmök en einnig með dropum frá öndunarvegi. Þá getur smit borist með fatnaði, handklæðum og rúmfötum,“ segir í tilkynningu á vef landlæknis.

Fólk hvatt til að fara í einangrun

Þar er jafnframt tekið fram að þrjár vikur geti liðið þar til sýktur einstaklingur hættir að smita en smithættan er yfirstaðin þegar síðasta blaðra á húð er gróin. Á meðan viðkomandi er smitandi, þá þarf hann að vera í einangrun. Einstaklingar sem útsettir eru fyrir smiti þurfa að vera í smitgát í allt að þrjár vikur.

„Allir sem fá bólur eða blöðrur á húð, sérstaklega á kynfærum eða svæði aðlæg kynfærum, eru hvattir til að fara í einangrun og hafa samband símleiðis við húð- og kynsjúkdómadeild, göngudeild smitsjúkdóma á Landspítala eða heilsugæsluna til að fá nánari ráðleggingar um greiningu og meðferð. Enn og aftur er fólk hvatt til að forðast náið samneyti við ókunnuga, þ.m.t. kynmök, sérstaklega á ferðum sínum erlendis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert