Aflýsa öllum flugferðum til London í júní

Vél Niceair á Akureyrarflugvelli, en hún átti að flytja farþega …
Vél Niceair á Akureyrarflugvelli, en hún átti að flytja farþega til London í dag. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Í ljósi vandkvæða við flug til og frá Bretlandi mun Niceair aflýsa fyrirhuguðum flugferðum til Bretlands í júní. Flugferðir til Bretlands verða ekki bókanlegar fyrr en varanleg lausn er komin á.

Öllum farþegum verður boðin endurgreiðsla, og þeim sem vilja hjálpað að komast á áfangastað erlendis eða heim aftur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu. 

Samningar Íslands og ESB við Bretland skarist

Eftir því sem næst verður komist felst vandinn m.a. í því að Ísland er með tvíhliða samning við Bretland um flugþjónustu og Bretland er með sams konar samning við Evrópusambandið. Þessir tveir samningar skarast í Bretlandi. Vandamálið byrjar þegar flytja á farþega frá Bretlandi til Íslands af flugrekanda með heimilisfesti í Evrópusambandinu (en ekki í Bretlandi eða á Íslandi),“ segir í tilkynningunni.

Þor­vald­ur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, framkvæmdastjóri Niceair, segir áhyggjuefni Breta vera neytendavernd. Eftir Brexit, útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, viðurkenna Bretar ekki lengur, sjálfkrafa, víðtæk neytendavarnarlög sem fylgja evrópskum (EU) flugrekendaskírteinum samkvæmt reglugerð Evrópusambandsins. 

Bresk yfirvöld vildu einnig meina að okkar ágætu samstarfsaðilar hefðu ekki heimildir til flugs til og frá Bretlandi, en þeir eru samt sem áður á lista yfir viðurkennda flugrekendur af breskum stjórnvöldum. Að auki var gerð krafa um að Niceair, íslenskt fyrirtæki, hefði breskt ferðaskrifstofuleyfi til sölu pakkaferða (flug, gisting, bílaleigubílar), sem er ekki starfsemi sem Niceair er í. Hvergi var minnst á þessi atriði í þriggja mánaða umsóknarferli um lendingarheimildir og stæði á flugvöllum í Bretlandi.“

„Ófyrirsjáanlegt og ekki á okkar valdi“

Í tilkynningunni segir að önnur flug hafi fengið mjög vel. Þannig hafi ekki komið upp nein vandamál í tengslum við flug til Danmerkur og Tenerife. Þeir áfangastaðir eru innan EES svæðisins. 

„Við höfum unnið sleitulaust að lausnum og lagt mikið af útfærslum á borð breskra yfirvalda. Við gerð tillagna höfum við notið öflugs liðsinnis Samgöngustofu, Utanríkisráðuneytis og breska sendiráðsins, en allt komið fyrir ekki. Framundan er helgi í Bretlandi og það að heyra á Bretum að ólíklegt sé að sú lausn sem er á borðinu verði samþykkt í tæka tíð vegna skorts á tíma og mannafla.“

Niceair mun halda áfram viðræðum við bresk stjórnvöld og miða að farsælli lausn málsins sem allra fyrst. 

„Okkar forgangsmál er að valda farþegum okkar sem minnstri röskun og hörmum við mjög þau óþægindi sem þetta kann að valda. Þetta var ófyrirsjáanlegt og ekki á okkar valdi að breyta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert